Forsíða
  Kátir dagar 2010  
  Um Langanesbyggð  
  Stjórnsýsla  
  Fréttabréf  
  Stofnanir  
  Atvinnulíf og þjónusta  
  Almannavarnir  
   - Almannavarnir  
   - Slökkvilið  
   - Lögreglan  
   - Björgunarsveitin Hafliði  
  Áhugaverðar síður  
  Ljósmyndasafn  
  Póstþjónn  
  Um vefinn  
  Gestabók  
  English  
 

 

Umsóknir og eyðublöð

 
     
 

Umsókn um afslátt faste.sk.
Umsókn um niðurrif mannv.
Umsókn um stöðuleyfi
Umsókn um byggingarleyfi
Umsókn um lóð
Umsókn um leikskólapláss
Ferða- og dvalarkostnað
Atvinnuumsókn
Húsaleigubætur
Flutningstilkynning innanlands
Flutningur til útlanda
Skráning í sambúð í þjóðskrá

 
 

 

Auglýsingar

 
     
 

 Eyrin til sölu
 UMFL 
 Slökkvilið Langanesb.
 Björgunarveitin Hafliði
 Langnesinga saga

 
 





Slökkvilið



Tenglar
Brunavarnaáætlun Langanesbyggðar & Svalbarðshrepps


Sími-4681220


Prófaðu þennan eldvarnarleik

Vaktstjóri Bakkafirði
Indriði Þórhallsson
GSM - 895-1686

verkstjori@bakkafjordur.is

Slökkviliðsstjóri
Axel Gunnarsson 
S - 4681142 GSM - 8961142
slokkvilid@langanesbyggd.is

Myndasíða

Í neyð 112




Eldvarnarvika og eldvarnargetraun

Vikan 21. - 28. nóvember var eldvarnarvika um land allt sem Landsamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og fleiri stóðu fyrir. Tóku flest allir skólar í landinu þátt. Börn í 3. bekk grunnskóla frá Bakkafirði að Lundi í Öxarfirði fengu fræðslu um eldvarnir frá eldvarnareftirlitsmanni.
Börnum úr Grunnskóla Þórshafnar og Grunnskóla Raufarhafnar var boðið í heimsókn á slökkvistöð á viðkomandi stað og vakti það mikla lukku hjá börnunum.
Slökkviliðsstjóri vill minna börn og foreldra á að skila getraun til kennara, þannig að allir verði með þegar dregið verður og verðlaun verða veitt á 112 daginn sem er 11. febrúar 2010.


112 dagurinn

11.2.2009

Haldið var upp á 112 daginn á Þórshöfn, farið var í alla grunnskólana, í Langanesbyggð og Svalbarðshreppi.

Í Grunnskóla Þórshafnar var rýming framkvæmd samkvæmt áætlun grunnskólans og þaðan var farið í íþróttahús sem sýndur var búnaður og fengu menn að prufa ýmislegt.

Vinsælt var að skoða bílaflotann, þáttakan var mjög góð yfir 100 manns mættu á staðinn.

Myndir

Myndir og grein Brunavarnir Langanesbyggðar




Slökkviliðsæfing á Bakkafirði

Brunavarnir Langanesbyggðar voru með æfingu í byrjun desember á Bakkafirði og var öllu til tjaldað til að æfingin væri sem best.

Röskir slökkviliðsmenn úr báðum bæjarfélögunum æfðu reykköfun ásamt því að allur búnaður bílana var prufaður til hins ýtrasta.
 Með þessum æfingum kynnast slökkviliðsmenn tækjabúnaði sínum betur og stytta þar með viðbragðstímann þar sem sekúndur geta skipt máli.

Guðmundur Hlífar Ákason tók þessar myndir frá æfingunni.




Slökkvibifreið á Bakkaflugvöll

Við fengum það verkefni hjá Flugstoðum að setja úðabyssu á MB Unimog TLF 1700 slökkvibifreið en sú bifreið var áður slökkvibifreið á Þórshöfn.

erkinu er nú lokið en ásetning var framkvæmd hjá Bíley á Reyðarfirði, en einnig kom Launafl við sögu þar sem þeir smíðuðu allar ryðfríar festingar og þá nippla og tengi sem þörf var á.

Úðabyssan er af sömu gerð og minni byssan á ISS flugvallarbifreiðinni á Egilsstöðum eða Akron Brass Firefox með 52 mm. inntaki en hámarksafköst eru 1.900 l/mín. Úðastúturinn er rafstýrður með stýripinna í ökumannshúsi. Byssan vegur aðeins um 15 kg.

Dælan í bifreiðinni er FP 8/8 af gerðinni Rosenbauer 63/125. Afköst eru sögð á dælunni 2.700 l/mín en það á eflaust við við 0 m. soghæð.

Sér froðutankur er í bifreiðinni svo lagt var frá honum að úðastút og á lögnina settur froðublandari frá Akron Brass af gerðinni Advantage 2302 sem skilar 950 l/mín en er faststilltur á 3%.

Rafstýrður loki af Swing Cut gerð var settur á froðulögn en hann er einnig frá Akron Brass.

Ákveðið var að setja ekki rafstýrðan loka á 4" lögnina frá tank að dælu heldur hafa hann opinn en ef til þess hefði komið hefðum við valið samskonar loka þ.e. Swing Cut 8840 gerð en hann er 4" og aðeins 8 sek. að opnast að fullu.

Ýmiss búnður var svo settur í bifreiðina eins og Protek 366 handlínustútur, 45 mm gular Ninbo slöngur og 3" hvítar Ningbo slöngur, Double Lounce fælubyssa, Towalex léttvatn, greinistykki, lyklar, minnkanir, tengi, ýmis verkfæri og hlífðarfatnaður.


Smellið hér og sjáið fleiri myndir.af heimasíðu www.olafurgislason.is




Unimoginnn farinn frá Þórshöfn

Gamli Bens Unimog slökkvibifreiðin sem hefur þjónað Þórshafnarbúum í um 8 ár hefur nú verið afhentur nýjum eigendum sem eru Flugstoðir ohf. og mun hann halda áfram að þjóna sem slökkvibifreið á Bakkaflugvelli á suðurlandi.

Bíllinn er af gerðinni Bens Unimog árgerð 1985 með 2300 lítra vatnstank og 800 l. eins þrepa dælu við 8 bar og 3 metra soghæð. Hann hefur mikla eiginleika til aksturs í torfærum en síður til hraðaksturs á vegum. Hámarkshraði er um 80 km/klst. Hann er með einföldu húsi og rúmar aðeins ökumann og einn farþega með góðu móti.

.


nánar

Nýtt netfang

Komið þið sæl
Slökkvilið Langanesbyggðar hefur fengið nýtt netfang:

slokkvilid@langanesbyggd.is
Ath.  
olafur@langanesbyggd.is 
mun verða fellt niður.

 Virðingarfyllst
Ólafur Stefánsson
slökkviliðsstjóri
Slökkviliðs Langanesbyggðar
S: 468 1220 og 893 4479




Brunavarnaáætlun

Föstudaginn 14. mars 2008 var undirrituð á skrifstofu Langanesbyggðar á Þórshöfn brunavarnaráætlun fyrir starfssvæði slökkviliðs Langanesbyggðar.  Áætlunina undirrituðu þeir Ragnar Skúlason, oddviti Svalbarðshrepps, Björn Karlsson, Brunamálastjóri og Björn Ingimarsson, sveitarstjóri Langanesbyggðar.  Að aflokinni undirskrift afhenti brunamálastjóri sveitarstjóra Langanesbyggðar forláta penna merktan Brunamálastjórn en með úreltu símanúmeri og hlaut í staðinn gjöf frá Langanesbyggð í formi handklæðis með úreltum sveitarfélagsmerkjum sveitarfélaganna sem sameinuðust í Langanesbyggð vorið 2006.

Grein :Björn Ingimarsson

Grein á vef brunamálastofnunar




Slökkvibíllinn formlega afhentur

14, mars 2008 

Brunamálastjóri kemur til Langanesbyggðar í dag til að skrifa undir Brunavarnaráætlun Langanesbyggðar en á sama tíma mun Ólafur Gíslason og Eldvarnarmiðstöðin  afhenda nýja slökkviliðsbílinn formlega  13:00

Frétta tilkynning

Reykjavík.14.mars.2008.

 Í dag afhendir Ólafur Gíslason & co / Eldvarnarmiðstöðin nýjan slökkvibíl til Langanesbyggðar og Flugstoða.

 Bílinn er smíðaður hjá ISS-Wawrzaszek í Póllandi en þeir hafa smíðað fjölda slökkvibifreiða og björgunargáma fyrir Íslendinga.

 Slökkvibíll þessi er sérbyggður fyrir húsabruna og til slökkvistarfa á flugvelli.

Hann er búinn 3.000 lítra vatnstanki, 300 lítra léttvatnstanki, 135 kílóa dufttæki, mannskapshús með aðstöðu fyrir fjóra reykkafara, auk alls þess búnaðar sem nota þarf við slökkvi og björgunarstörf, hvort sem er að ræða við flugvallar eða húsabruna eða björgunarstarfa á vettvangi.

 Ástæðan fyrir sameiginlegum kaupum Langanesbyggðar og Flugstoða á þessum slökkvibíl er sú að hjá báðum  aðilum var komið að endurnýjum slökkvibíla.

Í ljós kom að hagsmunir beggja aðila lágu saman í sameiginlegum kaupum á sérsmíðuðum öflugum bíl er hentað gæti þörfum beggja.

 Í burðarliðnum er hugsanlegt frekara samstarf þessara aðila í þá átt að Langanesbyggð taki yfir daglegan rekstur Þórshafnar

flugvallar.




Ný og glæsileg slökkvistöð á Raufarhöfn

19 febrúar 2008
Slökkvilið Raufarhafnar tók til notkunar á dögunum glænýtt húsnæði undir tækjabúnað sinn.

Óskar Slökkvilið Langanesbyggðar þeim til hamingju með glæsilegt húsnæði

Myndir af stöðinni eru á vef Raufarhafnar




Sýning á nýja Bílnum og öðrum búnaði

1. febrúar 2008
Fyrirhugað að vera með sýningu á tækjum og búnaði slökkviliðs Langanesbyggðar sunnudaginn 10 feb. Nánar auglýst síðar.

Slökkvibíllinn kominn á slökkvistöðina. Í gærkvöldi voru slökkviliðsmenn að æfa sig á bílinn og byrja að gera búnaðinn  sem fylgdi með klárann. Þar kennir ýmissa grasa t.d.

Yfirþrýstingsblásari til að nota við reyklosun

  • Sérstök keðjusög ætluð fyrir slökkvilið til að rjúfa þök og létta veggi
  • 1400 lítra dæla til vatnsöflunar í slökkvistarfi
  • 300 metrar af 3“ slöngulögn til vatnsöflunar
  • 120 metrar af 42mm slöngu fyrir vinnulagnir
  • 4 stk reykköfunartæki + aukakútar
  • Rafstöð  5,3 kW 220/380 volt
  • 6-7 metra hátt ljósamastur með 2x1000w kösturum
  • 9 m. Brunastigi
  • Sogbarkar ásamt sigti
  • Fjarstýrð Akron Brass úðabyssa á þaki, sem skilar 1.800 l/mín.
  • 6 stk sinuklöppur, til að slökkva sinu og gróður elda
  • 5 stk stútar á brunaslöngur
  • 2 stk brunaaxir
  • Ýmis handverkfæri, skóflur, hamrar, skrúfjárn, tangir, ljós o.fl.

Slökkvibifreiðin er byggð og útbúin af slökkvibifreiðaframleiðandum Wawrzaszek í Bielsko-Biala í Póllandi. Undirvagn er af gerðinni FLF 3000/300 Renault Midlum. Bifreiðin er með 280 hestafla vél og Allison 5 gíra sjálfskiptingu. Bifreiðin er byggð sem húsabruna og flugvallaslökkvibifreið til að þjóna einnig á flugvellinum á Þórshöfn.

Nánari upplýsingar á

 http://www.olafurgislason.is/?mod=sidur&mod2=view&id=268&sport=slokkvibifreidar




Bíllinn okkar kominn til landsins

28. janúar 2007
Í morgun fóru starfsmenn Ólafs Gíslasonar og Co. að sækja Langanesbyggðar slökkvibifreiðina á athafnasvæði Eimskips en bifreiðin kom til landins á miðvikudag.

Nú er bifreiðin í ökuritalöggildingu en fer í framhaldi af því í skráningu og svo í dekkjadekur

Fleiri myndir á heimasíðu Ólafs Gíslasonar og Co. 




Áramót 2007-2008

Vakt var hjá Slökkviliði Langanesbyggðar á áramótabrennum í sveitarfélaginu, bæði á Þórshöfn og Bakkafirði.

Á Bakkafirði stóðu vaktina þeir Marinó og Árni Bragi. Þar varð lítilsháttar sinubruni af völdum brennunar, sem slökkviliðsmenn slökktu og einnig slógu þeir á glæðurnar eftir að áhorfendur fóru.

Á Þórshöfn voru á vakt Svanur og Freyr, ekki reyndist þörf á aðgerðum að þeirra hálfu við brennuna en töluvert var um sinubruna í tengslum við flugeldasýninuna og einnig þurftu þeir að slökkva í vögnum sem skotfærunum var raðað á.
nánar

Grein um nýja slökkviliðsbílinn á vefnum

Grein á vef eldvarnarmiðstöðvarinnar um bílinn.

á heimasíðu
www.olafurgislason.is/

.

.


nánar

Bíllinn á leiðinni

10.desember 2007
Loksins er bíllinn á leiðinni, en hann á að hafa lagt af stað frá verksmiðjunni í Bielsko-Biala í Póllandi í gær sunnudag. Fer hann þá væntanlega í skip á morgun og ætti þá að vera á bryggju í Reykjavík á þriðjudag eftir viku. Eitthvað á svo eftir að vinna í bílnum áður en við getum sótt hann t.d. skera dekkin og setja slöngur og búnað um borð, þannig að það er orðið frekar hæpið að hann verði kominn hingað fyrir jól.

Ólafur Stefánsson Slökkviliðstjóri

Fleiri myndir


nánar

Nýr tækja- og mannflutningsbíll

25 okt 2007

Vopnafjarðarhreppur hefur fest kaup á nýjum tækjabíl fyrir slökkvilið Vopnafjarðar. Bíllinn er Ford F-350 árgerð 2007. Bíllinn tekur sex manns í sæti og kassinn aftan á mun geta hýst allan búnað sem til þarf á vettvangi bílsslys og meira til. 

Nýji bílinn mun leysa af gamla tækjabílinn sem er Ford Ecoline árgerð 1988 og er gamall sjúkrabíll. Sá bíll er búinn að standa sig vel til þessa en er úr sér genginn og ekki á hann treystandi lengur. Rauði kross deildin á Vopnafirði gaf slökkviliðinu þennan bíl undir klippubúnað fyrir um 10 árum og var það mikil og góð gjöf á sínum tíma. Rauða kross deildin á miklar þakkir fyrir það framtak.

Gamli bílinn ___________________________________________  Nýji bílinn 



                                                                                       



Námskeið á Vopnafirði

Dagana 7-9 sept. síðastliðin var haldið námskeiðið Slökkviliðsmaður 1  á Vopnafirði og var það Brunamálastofnun sem stóð fyrir því.

Frá Slökkviliði Langanesbyggðar fóru fjórir menn en það voru þeir Kristján, Steinn, Árni Bragi og Piotr.

Í lýsingu á námskeiðinu er eftirfarandi:

Markmið

Námið á að gera slökkviliðsmenn hæfa til að vinna af fagmennsku við störf sín og vera slökkviliði sínu til sóma og tryggja rétt og fumlaus vinnubrögð. Að loknu námi skal nemandinn vera hæfur til slökkvistarfa utanhúss, til að annast vatnsöflun, reyklosun og dælingu.


nánar

Gamli slökkvibíllinn á Raufarhöfn kominn á safn

Gamli slökkvibíllinn á Raufarhöfn er nú kominn á Samgönguminjasafnið á Ystafelli.  Áður en farið var af stað fóru tveir gamlir slökkviliðskappar í gömlu búningana og stilltu sér upp til myndatöku ásamt bílnum.

Myndir af brunabíl

www.raufarhofn.is




Myndir frá reykköfunaræfingu í Sætúni

5. apríl 2007
Slökkvilið Langanesbyggðar þar var með reykköfunaræfingu í Sætúni, rétt innan við Þórshöfn á dögunum.

Þessar myndir voru teknar af aðgerðum slökkviliðsmanna.




Frá Fonti til Reykjanestáar

17. júlí 2007
Búist er við að níu slökkviliðsmenn sem ákváðu að hjóla frá Fontinum á Langanesi til Reykjanestáar komi í mark í dag.

Lagt verður af stað í síðasta áfangann frá Grinndavík til Reykjanestáar 15km leið kl 11:00 í dag.

Garparnir báru sig vel þrátt fyrir mikla þreytu því leiðin sem þeir hafa lagt af baki er ekki eftir venjulegum vegum heldur yfir þvert landið yfir Sprengisand niður að Geysi um nesjavelli og þaðan til Grindavíkur.

Að sögn Kjartans Blöndal sem er í trússinu (fylgir þeim eftir á Bíl) bauð bláa lonið mönnunum í mat sem þeir þágðu með þökkum.

Meira á slökkvilið Langanesbyggðar




Frá fonti til táar

Hjóla til styrktar sjúkra og líknarsjóði SHS

Níu slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins (SHS) ætla að hjóla yfir landið 7.-18. júlí í því skyni að afla stuðnings við sjúkra- og líknarsjóð starfsmannafélags liðsins.

Hjólamennirnir gistu í Grunnskólanum á Þórshöfn á föstudagskvöldið og trússararnir höfðust þar við í gær við að græja farangur og nesti og raða í bílana.
Síðan héldu þeir í Hafralónshúsið í gærkveldi til móts við hjólreiðarmennina, en þeir voru að leggja í hann frá Þórshöfn um 6 leitið seinnipartinn í gær.
Sjá nánar á

www.babu.is


nánar

1 2 næsta síða

Viðburðadagatal

previous year prev month sep2010 next month next year
 máþrmififölasu
35303112345
366789101112
3713141516171819
3820212223242526
3927282930123

 

Fundargerðir

 
     
 

Fundarg. Langanesb. 2010 
Fundarg. Langanesb. 2009
Fundarg. Langanesb. 2008
Fundarg. Langanesb. 2007
Fundarg. Langsnesb. 2006
Fundarg. Þórshafnarhr.01-06
Fundarg. Skeggjast.hr.03-06

  

 
 

 

Gjaldskrár

 
     
 

Ál.ákvæði fasteignagjalda 2010
Gjaldskrá fyrir Þórsver
Gjaldskrá um geymslusvæði
Álagningarákvæði 2009, úr gildi
Ál. ákvæði gatnagerðar frá 1984
Langaneshafnir
Gatnagerðargjöld 2008
Gjaldskrá grunn- og leikskóla
Hundahald
Sláttur á lóðum
Leiguíbúðir

 
 

 

Góðgerðamál

 
     
  Magnús Sigurðsson
Davalarheimilið Naust
Violetu Kuczynska
Vala Örvarsdóttir
 
 


Langanesbyggð, Fjarðarvegi 3, 680 Þórshöfn Sími 468-1220 Bréfsími 468-1323 Kennitala: 420369-1749
Sveitarstjóri sveitarstjori(hja)langanesbyggd.is