Auglýsingar |
||
| Skattframtöl – bókhald – tölvuþjónusta. Sorpflokkun - gagnlegar upplýsingar Sorphirðudagatal 2013 Íbúagátt Langanesbyggðar |
||
Stjórnsýsla
AÐALFUNDUR UMFL
Aðalfundur UMFL verður haldinn sunnudaginn 28. apríl 2013 kl. 16:00 í kaffistofu Þórsvers. Boðið verður upp á grillaða pylsur og gos eftir aðalfund. Einnig verður boðið upp á bíó um leið og grillið byrjar fyrir káta krakka.
Dagskrá
Venjuleg aðalfundarstörf
Stjórn UMFL
Heimabyggðin mín - Þórshöfn á Langanesi
Þann 18. apríl sl lauk vinnu við verkefnið "Heimabyggðin mín" sem hefur staðið yfir frá áramótum.nánar
Kjörfundir vegna alþingiskosninga 27. apríl 2013
Kjörfundir í Langanesbyggð verða í Grunnskólanum á Þórshöfn og Grunnskólanum á Bakkafirði.nánar
Vinstri græn á Þórshöfn
Steingrímur J. Sigfússon, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir og Edward H. Huijbens, frambjóðendur Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi, verða með opinn fund í félagsheimilinu Þórsveri á Þórshöfn, mánudagskvöldið 22. apríl kl 20:00
Allir velkomnir
Fundur í sveitarstjórn
77. fundur sveitarstjórnar Langanesbyggðar, haldinn miðvikudaginn 24.apríl 2013, kl. 17:00 í félagsheimilinu Þórsveri Þórshöfn.nánar
Hópslysaæfing á Þórshafnarflugvelli
Hópslysaæfingin sem haldin var við Þórshafnarflugvöll á Langanesi í gær tókst vel að sögn Árna Birgissonar, samræmingarstjóra Isavia. Samhæfing og samvinna viðbragðsaðila þótti til fyrirmyndar, en á annað hundrað manns tóku þátt í æfingunni.
nánar
Styrkur til að bæta aðgengi að Stóra-Karli
Þann 17. apríl sl. var tilkynnt um úthlutun 278 milljóna króna úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Þetta er þriðja úthlutun ársins og hefur þá alls rúmum 576 milljónum króna verið úthlutað úr sjóðnum á árinu.
Langanesbyggð sótti um styrk til að bæta aðgengi að Stóra-Karli og hlaut rúmlega 8 milljónir í styrk í framkvæmdina. Framkvæmdarsjóður ferðamannastaða veitti styrk í fyrra vegna hönnunar á þessari framkvæmd.
Þetta er annar styrkurinn sem Langanesbyggð fær úthlutað úr framkvæmdarsjóði ferðamannastaða árið 2013 en áður fékk Langanesbyggð úthlutað rúmlega 1 milljón króna í verkefnið Upplýsingareitur á Þórshöfn. Það verkefni er samstarfsverkefni Langanesbyggðar og Þekkingarnets Þingeyinga.
Íbúaráðstefna í Langanesbyggð
Íbúaráðstefna verður haldin í Langanesbyggð laugardaginn 4. maí nk.og hefst kl 10:00.
Á ráðstefnunni verður fjallað um atvinnumál og nýsköpun.
Drög að dagskrá (með fyrirvara um breytingar)
Kl. 10:00 Setning ráðstefnu – oddviti Langanesbyggðar
Kl. 10:05 Hin mörgu andlit stoðkerfisins, Jóna Matthíasdóttir starfsmaður AÞ
Kl. 10:20 Örfá orð um þróunina, Reinhard Reynisson framkvæmdastjóri AÞ
Kl. 10:35 Ævintýrið á Siglufirði, Sigríður M. Róbertsdóttir framkvæmdastjóri og Finnur Yngvi Kristinsson verkefnastjóri Rauðku ehf
Kl. 10:50 Kaffihlé
Kl. 11:00 Hópastarf hefst
Kl. 12:00 Hádegishlé
Kl. 13:00 Hópastarfi fram haldið
Kl. 14:30 Samantekt og næstu skref
Kl. 15:00 Fundarlok
Íbúar í Langanesbyggð eru hvattir til að taka daginn frá, mæta á íbúaráðstefnu og taka virkan þátt.
Atvinnuuppbygging og nýsköpun í Langanesbyggð er mikilvægt verkefni sem snertir okkur öll
nánar
Vínarklassík á norðurhjara
Strengjakvartettinn Tígull ásamt Petreu Óskarsdóttur þverflautuleikara halda tónleika á Kaffi Smala Ytra Lóni næsta sunnudag, 21. apríl kl. 15:00.
Yfirskrift tónleikanna er „Vínarklassík á norðurhjara“.
Tígulkvartettinn skipa Zsuzsanna Bitay fiðluleikari, Tomasz Kolosowski fiðluleikari, Pawel Kolosowski víóluleikari og Ásdís Arnardóttir sellóleikari.
Þau leika m.a. kvartett nr. 2 í G dúr eftir W. A. Mozart
og Kvartett nr. 1 í F dúr eftir L.v. Beethoven.
Einnig verður leikið Lundúnatríó eftir J. Haydn, og kannske fleira.
Miðaverð kr. 1.500,- frítt fyrir eldri borgara, öryrkja og fyrir námsfólk.
Kaffi Smali selur kaffi og með því á vægu verði og barinn verður opinn.
Tónleikarnir eru styrktir af Menningarráði Eyþings
Heimabyggðin mín kynning í fyrramálið!
Nú er hinu svo kallaða „Heimabyggðarverkefni“ lokið og dómnefnd kemur til með að dæma og gefa umsagnir á þau verkefni sem nemendur kusu að leggja fyrir dómnefnd. Í dómnefndinni sitja: Páll Líndal (doktor í umhverfissálfræði), Eygló Bjarnardóttir (fv. lífeindafræðingur á Landspítalanum) og Ragnar Þorgeirsson (sparisjóðsstjóri). Á staðnum verður einnig Fríða Vala Ásbjörnsdóttir forsprakki verkefnisins.
Foreldrum, sveitastjórn, fræðslunefnd og öðrum gestum er boðið að koma og vera viðstatt þegar hóparnir kynna verkefnin sín og gefst gestum færi á að skoða og spyrja nemendur út í verkefnin.
Þetta mun fara fram í félagsheimilinu Þórsveri kl. 8:30 í fyrramálið, 18.apríl og stendur yfir í um klukkustund eða svo. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir!
Kjörskrá Langanesbyggðar vegna kosninga til Alþingis 27.apríl 2013
Frá og með 17 apríl nk. mun kjörskrá Langanesbyggðar vegna kosninga til Alþingis liggja frammi á skrifstofu Langanesbyggðar Fjarðarvegi 3 .
Á kjörskrá eru 333, þar af 186 karlar og 147 konur.
Sveitarstjóri.
SAFT fræðslufundur á Þórshöfn í dag
SAFT - Samfélag, fjölskylda og tækni - er vakningarátak um örugga tækninotkun (tölvur, símar o.s.frv.) barna og unglinga á Íslandi. Samtökin koma í grunnskólann í dag og fræða nemendur um örugga notkun þessarra flottu og fjölbreytilegu tækja. Allir nemendur miðstigs og unglingastigs fá þessa fræðslu í skólanum í dag. Síðan verður fundur fyrir foreldra í Þórsveri kl. 17:00 í dag. Við hvetjum alla foreldra til að koma á fundinn og láta sig þessi mikilvægu mál varða!Lífið á Skálum á Langanesi
Þann 23. apríl n.k. mun Sif Jóhannesdóttir flytja erindi um þorpið Skála og lífið þar. Erindið byggir m.a. á viðtölum sem tekin voru við fyrrum íbúa á Skálum sumarið 2008.
Fyrirlesturinn verður haldinn í Salnum í Nausti og hefst stundvíslega kl 14:00 og er á vegum félagsstarfs eldriborgara
Allir velkomnir
Opinn fundur um Landbúnaðarmál í Þórsveri í kvöld
Minnum á opinn fund um landbúnaðarmál í Langanesbyggð í Þórsveri Þórshöfn kl 20:00 í kvöld, mánudagskvöldið 15. apríl.Framsögumaður fundarins er Einar Ófeigur Björnsson sauðfjárbóndi og stjórnarmaður BÍ
Bændur í Langanesbyggð eru hvattir til að mæta
Allir velkomnir
nánar
Langaneshlaupinu frestað
Langaneshlaupinu ásamt þeirri dagskrá sem því fylgdi hefur verið frestað þar til snjóa leysir.
Nánar auglýst síðar
Fundur í sveitarstjórn
76. fundur sveitarstjórnar Langanesbyggðar, haldinn fimmtudaginn 11.apríl 2013, kl. 17:00 í félagsheimilinu Þórsveri Þórshöfn.
nánar
Grunnskólinn á Þórshöfn óskar eftir kennurum til starfa við skólann næsta skólaár
Við óskum eftir kennurum sem hafa brennandi áhuga og eru skapandi í starfi. Við leitum að fólki með margþætta reynslu og bakgrunn sem á það sameiginlegt að hafa brennandi áhuga á fjölbreyttum kennsluháttum og skólaþróun.
Í boði eru fjölbreytt viðfangsefni, þar sem hæfileikar og frumkvæði kennarans fær notið sín. Okkur vantar umsjónarkennara, kennara í list og verkgreinar, íþróttakennara og tungumálakennara.
nánar
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingiskosninga laugardaginn 27. apríl 2013 er hafin.
Skrifstofa embættisins er opin virka daga á milli kl. 9:30 – 15:00. Opið verður fyrir utankjörfundaratkvæðagreiðslu laugardaga og sunnudaga í apríl frá kl. 12:00 – 14:00. Sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 25. apríl, er opið frá kl. 10:00 til 14:00.
Á kjördag verður opið frá kl. 10:00 til 12:00.
Auk þess verður hægt að kjósa utan kjörfundar á eftirtöldum stöðum:
Skrifstofu Skútustaðahrepps, mánudaginn 22. apríl kl. 10:00 - 12:00.
Skrifstofu Þingeyjarsveitar, mánudaginn 22. apríl kl. 14:00 - 16:00.
Skrifstofu Norðurþings á Kópaskeri, þriðjudaginn 23. apríl kl. 9:30 - 10:30.
Skrifstofu Norðurþings á Raufarhöfn, þriðjudaginn 23. apríl kl. 12:00 - 13:00.
Lögreglustöðinni á Þórshöfn, þriðjudaginn 23. apríl kl. 15:00 - 16:00, en einnig samkvæmt ákvörðun lögreglumanns á vakt.
Umsóknir um atkvæðagreiðslu í heimahúsi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar skulu hafa borist eigi síðar en fjórum dögum fyrir kjördag.
Kjósendum er bent á nánari upplýsingar á vefslóðinni: http://www.kosning.is/
27. mars 2013
Sýslumaðurinn á Húsavík
Fundur frambjóðenda Sjálfstæðisflokksin á norðurlandi eystra
Opinn fundur frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins á Norðurlandi eystra verður í kaffistofu Þórsvers á Þórshöfn mánudaginn 8. Apríl og hefst kl. 17.00.
Kristján Þór Júlíusson, Valgerður Gunnarsdóttir og Ásta Kristín Sigurjónsdóttir mæta á fundinn.
Fólk er hvatt til að koma og eiga samræður við frambjóðendur.
Allir velkomnir
Sjálfstæðisflokkurinn X-D
Heilsuvika á Þórshöfn
Vikuna 6.-13. apríl verður heilsuvika á Þórshöfn.
Þá verður boðið upp á ýmsar heilsutengdar uppákomur og það verður mikið um að vera.
Íbúar í Langanesbyggð eru hvattir til að kynna sér dagskránna og taka virkan þátt.
Nánari upplýsingar um heilsuvikuna og dagskrá má nálgast hér.
Förum virk út í vorið
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52 53 54 55 56 57 58 59 60 61 62 63 64 65 66 67 68 69 70 71 72 73 74 75 76 77 78 79 80 81 82 83 84 85 86 87 88 89 90 91 92 93 94 95 96 97 næsta síða



