Forsíða
  Kátir dagar 2010  
  Um Langanesbyggð  
  Stjórnsýsla  
  Fréttabréf  
  Langaneshafnir  
  Skólar  
  Atvinnulíf og þjónusta  
  Almannavarnir  
  Áhugaverðar síður  
  Ljósmyndasafn  
  Póstþjónn  
  Um vefinn  
  Gestabók  
  English  
 

 

Umsóknir og eyðublöð

 
     
 

Umsókn um afslátt faste.sk.
Umsókn um niðurrif mannv.
Umsókn um stöðuleyfi
Umsókn um byggingarleyfi
Umsókn um lóð
Umsókn um leikskólapláss
Ferða- og dvalarkostnað
Atvinnuumsókn
Húsaleigubætur
Flutningstilkynning innanlands
Flutningur til útlanda
Skráning í sambúð í þjóðskrá

 
 

 

Auglýsingar

 
     
 

 Eyrin til sölu
 UMFL 
 Slökkvilið Langanesb.
 Björgunarveitin Hafliði
 Langnesinga saga

 
 





Stjórnsýsla


Ljósmyndun í dagsins önn

Sunnudaginn 14. mars verður haldið námskeið í ljósmyndun í Menntasetrinu á Þórshöfn. (Athugið breyttan námskeiðsdag).
Námskeiðið hefst kl. 10 og þar verður kennt á litlar sem stórar vélar, farið í undirstöður stillinga sem eru á öllum vélum. Ragnhildur Aðalsteinsdóttir ljósmyndari kennir námskeiðið en hún hefur nýlokið Mastersgráðu í ljósmyndun frá Kanada. Áhugasamir endilega sláist í hópinn, skráning hjá Grétu á Menntasetrinu 464-5142, greta@hac.is.
Ljósmyndasíðu Ragnhildar má sjá hér http://www.flickr.com/photos/raggz/

 
 

Tíundi bekkur heimsækir Menntasetrið

Krakkar í 10. bekk Grunnskólans á Þórshöfn sækja nú vikulega tíma í lífsleikni í Menntasetrinu. Þar með kynnast þau starfssemi setursins og hafa því betri sýn á þann valmöguleika að sækja framhaldsskólamenntun í heimabyggð næsta vetur. Anna Þorsteinsdóttir kennir krökkunum lífsleikni og segir það virkilega gaman að mynda þessa brú á milli grunnskólans og framhaldsskólans, með því að fá þennan prúða hóp í heimsókn.

 
 

Þjóðaratkvæðagreiðsla um Icesave

Þjóðaratkvæðagreiðsla um Icesave fer fram laugardaginn 6. mars nk. og verða kjörfundir settir kl. 10:00 og standa þeir til kl. 18:00, eða lögum samkvæmt.
Tvær kjördeildir verða í sveitarfélaginu, í Leikskólanum  á Bakkafirði og í Grunnskólanum á Þórshöfn. Kjósendum er bent á að mæta tímanlega á kjörstað og neyta kosningaréttar síns.
Framlagning kjörskrár!
Kjörskrá fyrir Langanesbyggð hefur verið yfirfarin og staðfest og liggur frammi, almenningi til skoðunar á almennum skrifstofutíma, á skrifstofum Langanesbyggðar. Á kjörskrá eru 331, þar af eru 182 karlar og 149 konur.
Sérstök athygli er vakin á því að kjósendum er skylt að gera kjörstjórn grein fyrir sér með því að framvísa persónuskilríkjum með mynd.
Yfirkjörstjórn :
Brynhildur Halldórsdóttir sími 846-9246
Oddur Skúlason
Marinó Oddsson
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla!
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram á lögreglustöðinni á Þórshöfn. Nánari upplýsingar veitir varðstjóri í síma 468 1133.

 
 

„Stórkostleg ný tækifæri í ferðaþjónustu á Norðurlandi“

Norðurland nýr áfangastaður fyrir erlenda ferðamenn gegnum beint flug til Akureyrar.
Opinn blaðamannafundur á Hótel KEA, mánudaginn 8. mars, kl: 10.00
Sumarið 2009 gerði Rannsóknamiðstöð ferðamála ítarlega könnun meðal brottfararfarþega í flugi Iceland Express frá Akureyraflugvelli. Var þetta í fyrsta sinn sem slík rannsókn hefur verið gerð og var hún unnin í náinni samvinnu við Flugstoðir. Nú liggja niðurstöður fyrir sem verða kynntar á opnum fundi mánudaginn 8. mars á Hótel KEA kl: 10.00.
nánar
 
 

Auglýsing vegna byggðakvóta

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2009/2010 sbr. reglugerð um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa nr. 82, 29. janúar 2010. Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög:
Snæfellsbær (Ólafsvík)
Bolungarvík
Langanesbyggð (Bakkafjörður).
Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 163/2010 í Stjórnartíðindum.
Sveitarfélagið Árborg (Eyrarbakki).
Grundarfjarðarbær
Tálknafjarðarhreppur
Kaldrananeshreppur (Drangsnes)
Húnaþing vestra (Hvammstangi)
Akureyrarbær (Grímsey, Hrísey)
Norðurþing (Húsavík, Kópasker, Raufarhöfn)
Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna á heimasíðu stofnunarinnar, og þar eru ofangreindar reglur einnig aðgengilegar. Umsóknarfrestur er til og með 15. mars 2010.
Fiskistofa, 27. febrúar 2010.

 
 

Kvennafótboltaæfing

Haldin verður æfing í kvennabolta mánudagskvöldið 8. mars nk kl. 19:30. Það verður bara auglýst ein æfing til reynslu og stefnan er að leggja grunninn að sigri á Ásbyrgismótinu í sumar. Þetta segir í tilkynningu frá áhugasömum forsprökkum.
Hvetjum allar til að mæta sem hafa einhvern minnsta áhuga á tuðrusparki og höfum gaman að þessu. Gunnólfur sveitarstjóri var svo örlátur að eftirláta okkur boxæfinguna sem á að vera á þessum tíma þar sem erfitt er að fá tíma í húsinu vegna þéttra bókana.

 
 

Fundur í sveitarstjórn Langanesbyggðar

Haldinn verður fundur í sveitarstjórn Langanesbyggðar föstudaginn  5. mars nk. kl. 17:00 í félagsheimilinu Þórsveri Þórshöfn.  
DAGSKRÁ:
1.     Fundargerð sveitarstjórnar dags. 18. febrúar 2010
2.     Fundargerð sveitarstjórnar dags. 25.febrúar 2010
3.     Fundargerð ÍTN dags. 18. febrúar 2010
4.     Fundargerð USB dags. 21. janúar 2010, liður fjögur
5.     Fundargerð húsnæðisnefndar dags. 3. mars 2010
6.     Fundargerð Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra dags. 10. febrúar 2010
7.     Skýrsla sveitarstjóra
8.     Ársskýrsla Félagsþjónustu Norðurþings 2009
9.     Drög að fjallskilasamþykkt
10.   Styrkir vegna úrbóta á ferðamannastöðum.
11.   Starfsmannamál. 

Þórshöfn 2. mars  2010,
Gunnólfur Lárusson, sveitarstjóri

 
 

Unglingadómaranámskeið í knattspyrnu á Þórshöfn

Unglingadómaranámskeið í knattspyrnu hjá UMFL verður haldið á Þórshöfn laugardaginn 27. mars kl. 13:00.  Um að ræða tveggja og hálfs tíma fyrirlestur og próf viku seinna. Áhersla er lögð á knattspyrnulögin, reglugerðir í 7 manna bolta og ýmis hagnýt mál. Kennarinn kemur frá Knattspyrnusambandi Íslands.
Sá sem lýkur þessu námskeiði öðlast réttindi til þess að dæma í 4. flokki og neðar og getur einnig verið aðstoðardómari í 2. flokki. Þessum réttindum fylgja þau fríðindi að frítt er á alla leiki á vegum KSÍ.
Námskeiðið er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri. Námskeiðið er ókeypis.
Þorsteinn Ægir tekur við skráningum (skráið fullt nafn og kennitölu) á námskeiðið í síma 847-6992 eða senda tölvupóst á thorsteinna@simnet.is.
Strákar og stelpur, karlar jafnt sem konur eru hvött til að nýta sér þetta tækifæri.

 
 


Fleiri fréttir

Viðburðadagatal

previous year prev month mar2010 next month next year
 máþrmififölasu
91234567
10891011121314
1115161718192021
1222232425262728
132930311234

 

 

Fundargerðir

 
     
 

Fundarg. Langanesb. 2010 
Fundarg. Langanesb. 2009
Fundarg. Langanesb. 2008
Fundarg. Langanesb. 2007
Fundarg. Langsnesb. 2006
Fundarg. Þórshafnarhr.01-06
Fundarg. Skeggjast.hr.03-06

  

 
 

 

Gjaldskrár

 
     
 

Ál.ákvæði fasteignagjalda 2010
Gjaldskrá fyrir Þórsver
Gjaldskrá um geymslusvæði
Álagningarákvæði 2009, úr gildi
Ál. ákvæði gatnagerðar frá 1984
Langaneshafnir
Gatnagerðargjöld
Gatnagerðagj. 2008
Gjaldskrá grunn- og leikskóla
Hundahald
Sláttur á lóðum
Félagslegar íbúðir

 
 

 

Góðgerðamál

 
     
  Magnús Sigurðsson
Davalarheimilið Naust
Violetu Kuczynska
Vala Örvarsdóttir
 
 


Langanesbyggð, Fjarðarvegi 3, 680 Þórshöfn Sími 468-1220 Bréfsími 468-1323 Kennitala: 420369-1749
Sveitarstjóri sveitarstjori(hja)langanesbyggd.is